Opnir spilaviðburðir í dag

Azul er eitt af fjölmörgum spilum til útláns
Azul er eitt af fjölmörgum spilum til útláns

Í dag munu Hilmar Kári Hallbjörnsson frá borðspil.is og Guðbergur Haraldsson heimsækja bókasafnið og kynna spil. Klukkan 17 verður kynning fyrir fjölskyldur og klukkan 20 fyrir fullorðna. Spilin verða uppstillt og Hilmar og Beggi kenna gestum reglurnar og leyfa þeim að prófa. Það er því nóg að mæta með góða skapið.

Í framhaldi af þessum viðburðum mun bókasafnið hefja útlán á spilum sem við höfum keypt inn og fengið gefins undanfarnar vikur. Lánstími spilanna verður 14 dagar og er erum við komin með þó nokkuð úrval.

Einnig er gestum velkomið að koma og spila í safninu, sem er til dæmis tilvalin afþreying í vetrarfríinu í næstu viku. Héraðsbókasafn Skagfirðinga við Faxatorg er opið alla virka daga frá kl 11 til 18.


Svæði

Héraðsbókasafn Skagfirðinga  |  Safnahúsinu við Faxatorg  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6050  bokasafn@skagafjordur.is