100 ár frá fæðingu Indriða G. Þorsteinssonar

Um næstu helgi, sem jafnframt markar upphaf Sæluviku, verður þess minnst í Safnahúsi Skagfirðinga að þann 18. apríl verða liðin 100 ár frá fæðingu Indriða G. Þorsteinssonar. Verður boðið upp á ferð um æsku- og sagnaslóðir skáldsins. Einnig verður haldið málþing og sýning í Safnahúsinu og kvikmyndin Land og synir sýnd í Bifröst.

Það er Kristján B. Jónasson sem mun leiða þátttakendur um slóðir skáldsins, en þess má geta að Kristján gerði útvarpsþættina Land og sonur sem fjalla um Indriða og voru nýlega fluttir á RÚV.  Ferðin hefst kl. 10, með göngu um gamla bæinn á Sauðárkróki en síðan verður haldið með rútu í Lýtingsstaðahreppinn. Skráning í ferðina er á netfanginu kristinse@skagafjordur.is og er nauðsynlegt að skrá sig þar sem fjöldi þátttakenda takmarkaður.

Á sunnudaginn, að lokinni setningu Sæluviku, eða kl 15, verður málþing til heiðurs Indriða. Þar mun Kristján einnig flytja erindi sem hann nefnir „Skagafjörður í verkum Indriða G. Þorsteinssonar.“ Fjölmargar smásögur og að minnsta þrjár skáldsögur Indriða gerast í Skagafirði. Tengsl sögustaðar og skáldskapar eru ekki síst forvitnilega fyrir þá sem þekkja héraðið og kannast við þá atburði og það fólk sem sögurnar vísa til. Farið verður yfir þessi tengsl og gerð grein fyrir verkum og stöðum.

Þá mun Birgitta Björg Guðmarsdóttir skáld flytja erindið „Tálkvendið Gógó – Tengsl 79 af stöðinni við rökkurmyndir.“ Birgitta rannsakaði þetta efni í BA-ritgerð sinni í íslensku. Sjálf hefur hún fengist við ritstörf. Meðal skáldverka hennar er Moldin heit sem kom út árið 2024. Fyrir þá bók var Birgitta tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlaut hún Fjöruverðlaunin fyrir sama verk.

Sólborg Una Pálsdóttir héraðsskjalavörður kynnir einkaskjöl Indriða, sem varðveitt eru í safninu og Kristín Sigurrós Einarsdóttir héraðsbókavörður kynnir höfundarverki Indriða, sem hægt verður skoða og auðvitað fá bækur hans lánaðar á bókasafninu. Loks mun Ágúst Guðmundsson kvikmyndargerðarmaður segja frá gerð kvikmyndarinnar Land og synir, sem byggð er á samnefndri bók Indriða. Klukkan átta á sunnudagskvöldið verður myndin svo sýnd í Bifröst og þangað eru öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.


Svæði

Héraðsbókasafn Skagfirðinga  |  Safnahúsinu við Faxatorg  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6050  bokasafn@skagafjordur.is