16. maí 2024
Nú er mögulegt að fá bókasafnskortið í farsímann. Lánþegar sækja kortið sjálfir með því að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum eða hafa samband við sitt bókasafn. Athugið að nota þarf “Smart Wallet” fyrir Android síma. Vinsamlegast notið krækjuna eða QR kóðann á myndinni til að virkja kortið.
Athugið að til að geta notað kortið á bókasafni þarf að gerast lánþegi þar.