Ársskýrsla Héraðsbókasafnsins var kynnt á fundi Atvinnu,- menningar og kynningarmálanefndar Skagafjarðar 20. mars sl. Í skýrslunni er farið yfir starfsemi sanffsins sl. ár en þar var bryddað upp á ýmsum nýjungum og m.a. haldið upp á 120 ára afmæli safnsins. Í skýrslunni er einnig farið yfir niðurstöður þjónustukönnunar sem lögð var fyrir í nóvember og desember sl. Þar kemur m.a. fram mikill áhugi á helgaropnun, áhugi á fleiri viðburðum o.fl.
"Með breyttri samfélagsgerð og lífsmynstri almennings hefur starfsemi almenningsbókasafna breyst og þróast síðustu áratugina. Það er mikilvægt að við fylgjum þeirri þróun og endurspeglum hana í
þjónustu okkar", segir Kristín Sigurrós Einarsdóttir héraðsbókavörður m.a. í lokaorðum skýrslunnar.
Hægt er að lesa skýrsluna hér.