Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall verður haldin á Norðurlandi vestra dagana 21. október - 4. nóvember næstkomandi, undir yfirskriftinni Öll saman. Bókasafnið tekur virkan þátt í hátíðinni og hlaut m.a. styrk fyrir verkefnið Blómin á þakinu. Auk þess mun Greta Clogh frá Handbendi á Hvammstanga koma í heimsókn með Tröllabrúðusmiðju.
Blómin á þakinu verða á dagskrá miðvikudagana- og fimmtudaga í næstu og þarnæstu viku. Í hvert sinn verður samnefnd saga eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur, myndskreytt af Brian Pilkington. Einn hluti sögunnar verður lesinn í einu og síðan unnin föndurverkefni út frá sögunni í smiðju sem leidd verður af Sigríði Ólafsdóttur á Hólum. Smiðjurnar eru ætlaðar 6-10 ára börnum og er hægt að mæta í allar fjórar smiðjurnar eða stakar smiðjur. Skráning er á bokasafn@skagafjordur.is.
Tröllabrúðusmiðjan verður þriðjudaginn 2. nóvember kl. 16:30. Hún er einkum ætluð börnum á miðstigi grunnskóla (10-13 ára) en yngri börn eru velkomin í fylgd með fullorðnum. Skráning í Tröllabrúðusmiðjuna er á þessum tengli.
Aðgangur er ókeypis á alla viðburðina.
