Bros á hverju andliti í brúðusmiðju

Einbeittir brúðusmiðir
Einbeittir brúðusmiðir

Það var mikill handagangur í öskjunni og bros á hverju andliti í tröllabrúðusmiðju á laugardaginn. Leiðbeinandi var brúðuleikarinn Greta Clough frá Hvammstanga. Fimmtán þátttakendur gerðu sínar eigin brúður undir hennar leiðsögn. 

Þátttakendur voru alls fimmtán, á öllum aldri, og fylgdu foreldrar þeim yngstu og aðstoðuðu við verkið. Hver og einn gerði sína eigin brúðu úr alls kyns endurunnum efnivið, svo sem svampi, efnisbútum, tölum og gærum. Brúðurnar voru jafn ólíkar og þær voru margar og hugmyndaflugið og sköpunargleðin fékk svo sannarlega að njóta sín.

Fleiri myndir frá brúðusmiðjunni er að finna á Fésbókarsíðu safnsins.

Tröllabrúðusmiðjan hlaut styrk úr Menningarsjóði KS og Bókasafnasjóði og erum við svo sannarlega þakklát fyrir það.


Svæði

Héraðsbókasafn Skagfirðinga  |  Safnahúsinu við Faxatorg  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6050  bokasafn@skagafjordur.is