Síðasta laugardag, 5. september, var fyrsti laugardagurinn sem bókasafnið á Sauðárkróki var opið þetta haustið. Í lok síðasta árs var tekin ákvörðun um að hafa safnið opið á laugardögum, nema sumarmánuðina þrjá; júní, júlí og ágúst. Hófst laugardagsopnun í febrúar sl. og mæltist vel fyrir. Að þessu sinni höfðum við endurvinnslusmiðju þar sem þær Solveig Pétursdóttir og Þuríður Helga Jónasdóttir frá Verðanda-Endurnýtingarmiðstöð á Hofsósi leiðbeindu um gerð bókarmerkja, tækifæriskorta og minnisbóka úr endurunnum pappír og textil.
Það var talsverður gestagangur hjá okkur þennan laugardag og vonumst við til að gestir okkar verði duglegir að nýta sér laugardagsopnunina í vetur. Það er oft annar taktur þegar tækifæri gefst til að heimsækja bókasafnið á laugardögum og margir sem gefa sér þá betri tíma til að staldra við, lesa bækur eða tímarit, skoða safnkostinn eða njóta stundarinnar í barnahorninu.
Í vetur verða opnunartímar almenningsbókasafnanna í Skagafirði eftirfarandi:
Hofsós (Túngata 2): Miðvikudagar kl. 15-17.
Sauðárkrókur (Safnahúsið við Faxatorg): Virkir dagar kl. 11-18 og laugardagar kl. 10:30-14:00.
Varmahlíð (Varmahlíðarskóli, jarðhæð við aðalinngang): Fimmtudagar kl. 15-17.
Flýtilyklar
Endurvinnslusmiðja og laugardagsopnun
09. september 2026
