Starfsfólk Safnahússins nýtir ýmis tækifæri til að gera sér dagamun í vinnunni, og séu tilefnin ekki til staðar má einfaldlega búa þau til. Í dag var efnti til Gömlupeysudags, þar sem starfsfólk dró fram úr skúmaskotum gamlar peysur. Að sjálfsögðu var einnig boðið upp á gómsætar veitingar í kaffitímanum, sem að þessu sinni var í umsjá skjalasafnsins.
Eins og meðfylgjandi mynd ber með sér, fundust nokkrar peysur sem voru um það bil 30-40 ára gamlar, sem telst kannski ekki mjög gamalt hjá fólki sem vinnur í safnageiranum. Engu að síður skemmtilegar og litríkar peysur sem starfsfólkið skartar á myndinni.
Myndina tók Hjalti Pálsson.
