Hafsteinn Már Sigríðarson Khan var á dögunum fastráðinn sem bókavörður við safnið. Hafsteinn er flestum gestum safnsins þegar kunnugur, því hann hefur starfað við safnið síðustu tvö ár í afleysingum vegna veikindaforfalla. Helstu verkefni hans eru afgreiðsla og þjónusta seinnipart dags, skráning spila, púsla, bókamarkaðsbóka, auglýsingagerð og markaðssetning. Við fögnum því að fá Hafstein í okkar góða starfsmannateymi sem telur fjóra starfsmenn í 2,7 stöðugildum.
Hafsteinn tekur við af Hjördísi Gunnarsdóttur sem starfað hafði við safnið um nokkurra ára skeið en lét af störfum í sumar. Um leið og við bjóðum Hafstein velkominn til starfa þökkum við Hjördísi góð störf og óskum henni alls hins besta.