Héraðsbókasafn Skagfirðinga óskar eftir bókaverði. Um 85% starf er að ræða.
Tímabil starfs: 18. desember 2017 eða eftir samkomulagi.
Starfshlutfall: 85% starfshlutfall.
Starfsheiti: Bókavörður II.
Vinnutími: Dagvinna.
Lýsing á starfinu: Starfsmaður sinnir almennum verkefnum bókavarðar; afgreiðir bækur og önnur gögn, raðar í hillur, merkir og plastar bækur og leiðbeinir viðskiptavinum um safnkost.
Menntunarkröfur: Stúdentspróf og góð tölvukunnátta.
Hæfniskröfur: Skilyrði er að umsækjendur hafi mikinn áhuga á bókum og bókalestri. Umsækjendur þurfa að hafa mikla hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum og hafa ríka þjónustulund. Enskukunnátta. Lögð er áhersla á stundvísi, dugnað, heiðarleika og áreiðanleika í starfi.
Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2017
Nánari upplýsingar: Þórdís Friðbjörnsdóttir, héraðsbókavörður, í síma 455-6051 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið thordis@skagafjordur.is.
Umsóknir: Umsókn þarf að fylgja prófskírteini, starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og áhuga umsækjanda á bókum og bókalestri. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf).
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.