Joachim B Schmidht, höfundur bókarinnar Ósmann, er væntanlegur í heimsókn á Héraðsbókasafn Skagfirðinga á Sauðárkróki fimmtudaginn 29. janúar. Þar mun hann kynna bók sína Ósmann, sem fjallar um ferjumanninn og Skagfirðinginn Jón Ósmann. Bókin kom í lok síðasta árs og hefur notið mikilla vinsælda á bókasafninu.
Joachim B. Schmidt er fæddur árið 1981 og uppalinn í Sviss en hefur búið á Íslandi í nær tvo áratugi. Hann skrifaði sig inn í hjörtu lesenda með bókum sínum um Kalmann á Raufarhöfn en þær hafa verið þýddar á fjölda tungumála og báðar hlotið ýmsar tilnefningar og verðlaun.
Um aldamótin 1900 voru mörg stórfljót landsins enn óbrúuð og fólk reiddi sig víða á ferjumenn til þess að komast yfir illfær og óútreiknanleg fallvötnin. Einn þeirra var Jón Ósmann sem flutti menn og skepnur yfir Héraðsvötn um fjögurra áratuga skeið. Jón var tröll að burðum, stórtækur sel- og fiskveiðimaður, guðsmaður, drykkjumaður og annálað skáld. En öðru fremur var hann mannvinur með meyrt hjarta sem sá lengra en nef hans náði. Örlögin fóru óblíðum höndum um þennan einstaka karakter og hann lést fyrir aldur fram.
Við vonumst til að sjá sem flesta á þessum áhugaverða viðburði sem hefst kl. 17:30.
