Í febrúar verður tekin upp sú nýbreytni að bókasafnið á Sauðárkróki verður opið á laugardögum kl. 10:30-14:00, yfir vetrartímann. Fyrsta laugardagsopnuninn verður því 7. febúar. Þann sama dag stendur til að bjóða upp á brúðusmiðju.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd ákvað sl. haust að taka upp laugardagsopnun á safninu, í kjölfar óska um slíkt, m.a. í niðurstöðum þjónustukönnunar sem gerð var í árslok 2024. Er þetta hrein viðbót við þjónustu safnsins, því opnunartími á virkum dögum helst óbreyttur, kl. 11:00-18:00 alla virka daga. Opnunartími á Hofsósi mun hins vegar færast á milli vikudaga, og verður frá og með næstu viku á fimmtudögum kl. 15:00-18:00.
Fyrsti laugardagurinn sem opið er á þessu ári verður 7. febrúar næstkomandi. Þann dag stendur einnig til að bjóða upp á brúðusmiðju. Er það Greta Clogh frá Hvammstanga sem kemur og leiðbeinir. Allt efni verður til staðar en nauðsynlegt er að skrá sig gegnum netfangið bokasafn@skagafjordur.is. Börn 7 ára og yngri þurfa að koma í fylgd með fullorðnum.
Það er von okkar að þessi góða viðbót við þjónustu safnsins mælist vel fyrir og við sjáum bæði fastagesti og nýja gesti nýta sér hana.
