02. júní 2026
Síðustu mánuði hefur Gígja Glódís, nemandi í 10. bekk Árskóla, verið í vinnustaðanámi hjá okkur. Hennar helsta verkefni var að hanna og gera veggskreytingar í barnahornið. Þar sem verkefnið hófst um svipað leiti og við fögnuðum 80 ára afmæli Línu langsokks, var ákveðið að gera veggskreytingar í barnahornið. Gígja Glódís gerði þessar fallegu klippimyndir úr kartoni og nú eru þær komnar upp á vegg hjá okkur í barnahorninu. Við þökkum Gígju Glódísi fyrir samveruna og þetta fallega verkefni sem við munum áfram njóta. Myndin var tekin þegar hún og Siva, starfsmaður bókasafnins, festu myndina saman og hengdu hana upp á vegg.
