Námskeið í grúski

Mynd: Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
Mynd: Héraðsskjalasafn Skagfirðinga

Héraðsbókasafn og Héraðsskjalasafn standa fyrir námskeiði í grúski. Námskeið er ætlað þeim sem vilja kynna sér uppruna sinn og umhverfi betur og grúska sér til ánægju.

Helstu viðfangsefni á námskeiðinu eru eftirfarandi:

  • Hvernig get ég fundið og nýtt mér efni á netinu, í skjölum og í bókum?
  • Hvernig get ég nýtt mér gögn sem leynast heima fyrir og hjá fjölskyldunni?
  • Hvernig get ég komið efninu á framfæri?

Námskeiðið verður haldið dagana 16., 23. og 30. janúar frá kl 17:00-18:00 í Safnahúsi við Faxatorg á Sauðárkróki. Menningarsjóður Kaupfélags Skagfirðinga styrkir verkefnið og er námskeið því þátttakendum að kostnaðarlausu. Námskeiðið er jafnframt hluti af viðburðaröð í tilefni af 120 ára afmæli Héraðsbókasafnsins, en safnið var stofnað árið 1904.

Skráning fer fram í gegnum netfangið bokasafn@skagafjordur.is eða í sima 455-6050. 

Æskilegt er að þátttakendur hafi með sér spjaldtölvu eða fartölvu.


Svæði

Héraðsbókasafn Skagfirðinga  |  Safnahúsinu við Faxatorg  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6050  bokasafn@skagafjordur.is