Skúnaskralli lýkur í dag

Skapandi hendur mála torfbæ
Skapandi hendur mála torfbæ

Barnamenningarhátíðinni Skúnaskralli lýkur í dag, en hún hefur staðið yfir síðustu tvær vikur. Bókasafnið hefur tekið virkan þátt í hátíðinni. Við þökkum öllum börnum og foreldrum sem hafa heimsótt okkur á þessum viðburðum fyrir þátttökuna og þökkum SSNV stuðninginn.

Verkefnið Blómið að þakinu, þar sem samnefnd bók Ingibjargar Sigurðardóttur og Brians Pilkington var lesin og föndurverkefni unnin út frá henni, samanstóð af fjórum smiðjum. Þær Sigríður Ólafsdóttir og Telma Björk Gunnarsdóttir, sem báðar starfa í leikskólum hér í Skagafirði, leiddu verkefnið. Börnin sem tóku þátt bjuggu til torfbæ, blokkina hennar Gunnjónu ömmu, svalir með matjurtagarði og kommóðu með hænum. 

Í fyrradag heimsóttu brúðulistakonan Greta Clogh á Hvammstanga safnið og bauð upp á tröllabrúðusmiðju. Þetta er í annað sinn sem Greta heimsækir okkur og er smiðjan vinsæl og sköpunargleðin fær þar ríka útrás.

 


Svæði

Héraðsbókasafn Skagfirðinga  |  Safnahúsinu við Faxatorg  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6050  bokasafn@skagafjordur.is