Sumarlestrarlok

Verðlaunahafar í sumarlestri 2026
Verðlaunahafar í sumarlestri 2026

Í lok ágúst héldum við viðburðinn Sumarlestrarlok, sem var endapunktur á lestraráskorun sumarsins. Sumarlesturinn er sameiginlegt átak miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og almenningsbókasafna um allt land. Að þessu sinni bar sumarlesturinn yfirskriftina Lestrarsprettur Gúnda geithafurs.
Þátttakan var góð og var um 150 lestrarmiðum skilað inn á safnið í sumar. Á Sumarlestrarlokum var lesið upp úr nýrri barnabók, boðið upp á ávexti og djús og dregnir út 4 heppnir þátttakendur sem fengu í verðlaun nýja barnabók eftir Þórarinn Eldjárn. Þau sem hlutu verðlaun voru Emilý Ósk, Karl, Kristófer Orri og Sunneva Dís.


Svæði

Héraðsbókasafn Skagfirðinga  |  Safnahúsinu við Faxatorg  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6050  bokasafn@skagafjordur.is