20. maí 2026
Sumarlestur 2026!
Komdu á næsta bókasafn og fáðu vegabréf til þess að taka þátt í ævintýrinu með Gúnda geithafri.
Fyrir hverjar 15 mínútur af lestri litar þú leiðina í ævintýrakortinu innan í vegabréfinu.
Þegar þú hefur náð klukkustund af lestri getur þú komið á bókasafnið með vegabréfið, fengið stimpil og happamiða!
Dregið verður úr happamiðum í lok sumars.
Heppnir þátttakendur fá vinning!
Þú getur fengið vegabréfið á öllum starfstöðvum Héraðsbókasafns.
Markmiðið er að lesa í 15 mínútur á dag og merkja þá við hvert barnið er komið á leið Gúnda í grasleitinni miklu. Við fjórða hvern lestur hafa börnin lesið í klukkustund og lenda á stjörnu. Fyrir hverja stjörnu fá þau stimpil eða límmiða í vegabréfið á næsta bókasafni og jafnframt happamiða til að setja í lukkupott.
Smám saman ná þau að heimsækja alla áhugaverðu staðina sem Gúndi ferðast um og fá stimpil eða límmiða fyrir. Þá geta þau með stolti sagt: „Ég fann grasið í Grænuhlíð!“
Nánar um verkefnið má finna á https://sumarlestur.is/
