Vel mætt á upplestrarkvöld

Kristín Steinsdóttir les úr bók sinni
Kristín Steinsdóttir les úr bók sinni

Þann 15.nóvember fengum við góða gesti á bókakvöld Héraðsbókasafnsins. Rithöfundarnir Bjarni Harðarson, Illugi Jökulsson, Kristín Steinsdóttir og Vilborg Davíðsdóttir glöddu okkur með skemmtilegum upplestri úr verkum sýnum. Hjalti Pálsson ritstjóri Byggðasögu Skagafjarðar kynnti 8. bindi ritraðarinnar sem fjallar um Fells-og Haganeshreppa. Vel á annað hundrað gestir mættu og nutu ánægjulegrar kvöldstundar.


Svæði

Héraðsbókasafn Skagfirðinga  |  Safnahúsinu við Faxatorg  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455 6050  bokasafn@skagafjordur.is