Flýtilyklar
Fréttir
Kvöldstund með höfundi
08. október 2025
Rithöfundurinn, Benný Sif Ísleifsdóttir, kemur til okkar á bókasafnið fimmtudagskvöldið 9. október kl 20:00. Hún segir frá draumum og þrám sögupersóna sinna og les brot úr bókum sínum, sögulegum skáldsögum sem allar gerast úti á landi. Gríma [2018], Hansdætur [2020], Djúpið [2021], Gratíana [2022], Speglahúsið [2024].
Lesa meira
Frábær mæting á lestrarstund með leikurum
06. október 2025
Á fimmtudaginn var fengum við góða heimsókn á safnið þegar tveir leikarar frá Leikfélagi Sauðárkróks, þau Ísak Agnarsson og Emilia Kvalvik, komu í heimsókn. Þau lásu bók um Einar Áskel fyrir börnin og tóku svo lagið með þeim á eftir. Rúmlega sextíu gestir komu til að hlusta á upplesturinn og syngja með þeim. Það má því segja að það hafi ríkt stuð og stemming á safninu seinni partinn í gær, enda metmæting í þessa lestarstund.
Lesa meira
Leikarar í heimsókn í lestrarstund
01. október 2025
Þau Dagný og Guðmundur úr Óvitum (Emilia og Ísak), sem Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir 10. október, eru væntanleg í heimsókn í Lestrarstund á morgun, fimmtudaginn 2. október. Þau munu lesa fyrir börnin og taka lagið.
Lesa meira