Flýtilyklar
Fréttir
Endurvinnslusmiðja og laugardagsopnun
09. september 2026
Síðasta laugardag, 5. september, var fyrsti laugardagurinn sem bókasafnið á Sauðárkróki var opið þetta haustið. Í lok síðasta árs var tekin ákvörðun um að hafa safnið opið á laugardögum, nema sumarmánuðina þrjá; júní, júlí og ágúst. Hófst laugardagsopnun í febrúar sl. og mæltist vel fyrir. Að þessu sinni höfðum við endurvinnslusmiðju, þar sem þær Solveig Pétursdóttir og Þuríður Helga Jónasdóttir frá Verðanda-Endurnýtingarmiðstöð á Hofsósi leiðbeindu um gerð bókarmerkja, tækifæriskorta og minnisbóka úr endurunnum pappír og textil.
Lesa meira
Nærri tíu prósent fjölgun gesta
01. júlí 2026
Fjölgun gesta á Héraðsbókasafni Skagfirðinga fyrri hluta ársins 2026 á Sauðárkróki er tæp 10% miðað við fyrra hluta ársins í fyrra. Fjölgunin er í öllum mánuðum ársins, en mest þó í maí og júní.
Lesa meira
Lína langsokkur komin í barnahornið
02. júní 2026
Síðustu mánuði hefur Gígja Glódís, nemandi í 10. bekk Árskóla, verið í vinnustaðanámi hjá okkur. Hennar helsta verkefni var að hanna og gera veggskreytingar í barnahornið. Þar sem verkefnið hófst um svipað leiti og við fögnuðum 80 ára afmæli Línu langsokks, var ákveðið að gera veggskreytingar í barnahornið.
Lesa meira


