Flýtilyklar
Fréttir
Hafsteinn Már fastráðinn til safnsins
06. október 2026
Hafsteinn tekur við af Hjördísi Gunnarsdóttur sem starfað hafði við safnið um nokkurra ára skeið en lét af störfum í sumar. Um leið og við bjóðum Hafstein velkominn til starfa þökkum við Hjördísi góð störf og óskum henni alls hins besta.
Lesa meira
Sumarlestrarlok
10. september 2026
Í lok ágúst héldum við viðburðinn Sumarlestrarlok, sem var endapunktur á lestraráskorun sumarsins. Sumarlesturinn er sameiginlegt átak miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og almenningsbókasafna um allt land Að þessu sinni bar sumarlesturinn yfirskriftina Lestrarsprettur Gúnda geithafurs.
Lesa meira
Endurvinnslusmiðja og laugardagsopnun
09. september 2026
Síðasta laugardag, 5. september, var fyrsti laugardagurinn sem bókasafnið á Sauðárkróki var opið þetta haustið. Í lok síðasta árs var tekin ákvörðun um að hafa safnið opið á laugardögum, nema sumarmánuðina þrjá; júní, júlí og ágúst. Hófst laugardagsopnun í febrúar sl. og mæltist vel fyrir. Að þessu sinni höfðum við endurvinnslusmiðju, þar sem þær Solveig Pétursdóttir og Þuríður Helga Jónasdóttir frá Verðanda-Endurnýtingarmiðstöð á Hofsósi leiðbeindu um gerð bókarmerkja, tækifæriskorta og minnisbóka úr endurunnum pappír og textil.
Lesa meira

